Ólympíuleikarnir í London 2012 – Kynningarmyndband

ol

Nú er heldur betur farið að styttast í ólympíuleikana sem fram fara í London í sumar. 204 þjóðir munu þar keppa á stærsta sviði íþróttanna, en við Íslendingar getum verið stoltir af því að eiga fjölmarga fulltrúa á leikunum. Opnunarhátíðin fer fram þann 27.júlí n.k. en keyrslan verður talsverð því öllum 302 viðburðunum verður svo lokið þann 12.ágúst. 

Sprettir vs. “langvarandi brennsla”(Rannsókn)

sprettir

Ég verð alltaf pínu leiður að sjá hversu margir hanga á hlaupabrettum eða skíðavélum í laaaangan tíma við litla ákefð á líkamsræktarstöðvum landsins. Ef fólk er að æfa sig fyrir eitthvað hlaup eða hefur gaman af þessu þá er það að sjálfsögðu gott og blessað. En mig grunar að langstærstur hlutinn af þessu fólki sé að reyna að “brenna”. Ástæðan fyrir því að ég verð svona leiður er að þessi aðferð er langt frá því að vera besta leiðin til að “brenna” fitu. Það er nefnilega til önnur aðferð, sem við höfum reyndar oft fjallað um áður, og það eru sprettir, eða lotuþjálfun. Hér koma niðurstöður úr rannsókn frá því í fyrra sem sýnir svart á hvítu hvað fólk ætti að vera að gera til þess að “brenna” fitu.

Hugleiðingar um bakverki

bakverkir

Í gegnum árin hefur hin klassíska „fix it“ nálgun í kringum bæklun (orthopediu), taugasjúkdóma (neuro) og endurhæfingu leitt til mikillar áherslu á vefræn vandamál (structural pathology) og að mínu mati of lítillar áherslu hin stafrænu vandamál og frávik (functional pathology). Því miður hefur þessi nálgun oft á tíðum

Blái Naglinn

blainag

Við hjá Púlsþjálfun.is erum svo lánsamir að eiga stóran hóp lesenda sem heimsækir okkur daglega. Í þetta skiptið ákváðum við að misnota okkur aðstöðu okkar og styðja við árveknis- og vitundarvakningarátakið Blái Naglinn sem fer nú fram hér á landi.

Kaffimixið

kaffimix

Að lifa heilbrigðum lífsstíl hef ég oft sagt að sé svo miklu meira en að vera fanatíker í heilsu. Að njóta góðs matar, jafnvel þó hann sé hitaeiningaríkur er að mínu mati hið besta mál, svo lengi sem fólk stundar einhverskonar hreyfingu á móti og þekkir sín takmörk. 

Jákvæð áhrif koffíns

koffín
Koffín er fullt af andoxunarefnum sem hafa góð áhrif á mannslíkamann og rannsóknir hafa sýnt fram á aukin afköst í styrktarþjálfun eftir að hafa innbyrt koffín. Koffín getur því verið ákaflega gagnlegt “fæðubótarefni” og nokkrir gamaldags bollar af kaffi á dag gera þér bara gott. Þá er ég að tala um venjulegt svart kaffi, ef þú drekkur nokkra bolla á dag með helling af rjóma og sykri ertu farinn að drekka slatta af óþarfa hitaeiningum. En hér eru nokkrir punktar um kosti þess að drekka kaffi eða innbyrða koffín:

Hversu fær er þinn þjálfari?

góður þjálfari

Einkaþjálfarar eru eins misjafnir eins og þeir eru margir en einkaþjálfari er ekki verndað starfsheiti og því getur hver sem er kallað sig einkaþjálfara og tekið fólk í þjálfun. Fyrir Jón eða Gunnu úti í bæ er ekki auðvelt að sjá hver er góður þjálfari og hver er lélegur,

Hannaðu þitt eigið æfingarprógramm

hanna

Að hanna sitt eigið æfingarprógramm getur stundum virst ótrúlega mikið moj. Einhvernveginn eru hlutirnir alltaf svo réttir og sannir þegar að einhver annar segir þá, en ef þeir koma manni sjálfum, getur verið erfiðara, bæði að hafa trú á þeim og að fylgja þeim jafnvel eftir.

Viðtalið: Helga Margrét Þorsteinsdóttir

helgam4

Helga Margrét Þorsteinsdóttir er í viðtalinu hjá okkur að þessu sinni. Helga er mikið að bæta sig í sjöþrautinni þessa dagana en hún er tvítug og á bara eftir að bæta sig meira. Við þökkum Helgu kærlega fyrir, óskum henni góðs gengis og fylgjumst spenntir með árangri hennar.

Helga, segðu okkur örstutt frá sjálfri þér:

Bekkpressan-tækni

Bekkpressan

Bekkpressan er án efa vinsælasta styrktaræfing sem til er sem sést á því að margar líkamsræktarstöðvar eru með 3-4 bekkpressubekki en bara einn hnébeygjurekka. Bekkpressan er líka sú æfing sem er mælikvarði á styrk hjá flestum, allir sem lyfta eitthvað af viti hafa fengið spurninguna: “hvað tekuru í bekk?” Bekkpressan er góð æfing til að byggja upp styrk í efri líkama en það er oft sorglegt að fylgjast með hvernig bekkpressan er framkvæmd á líkamsræktarstöðvunum.

Powered by WordPress | Shop Free T-Mobile Phones Online | Thanks to Verizon Phones without Contract, MMORPG Games and Sell Car